Í dag er OJ’s wheels hluti af vörumerkja grúpu NHS Inc. OJ’s var eitt af hjólabrettadekkja merkjum áttunda áratugsins sem spruttu upp einsog gorkúlur í kjölfar innleiðingar úreþan í framleiðsluferli hjólabretta dekkja. Á þeim tíma voru vinsælustu dekkin gerð af Bones og Sims. Sims var með dekk sem kallaðist Juice, OJ nafnið er greinilega með vísan í nafn aðal keppinautar síns á þeim tíma. Super Juice komu fyrst á markaðinn um 1977 og eru þekktust fyrir frumlega appelsínugula litin og nú sígilda OJ formið(shape). Í gegnum tíðina hafa OJ´s framleitt dekk fyrir alla anga hjólabrettaiðkunar(street, slalom and downhill). því miður hurfu OJ‘s af markaði í nokkur ár í lok níunda áratugarins. Fyrir nokkrum árum tóku NHS OJ´s uppá sýna arma og endurreistu vörumerkið. í dag er öll framleiðslu vörumerkisins innblásin af uppruna OJ´s frá áttunda áratuginum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir ennþá.